Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
225
B1 e i k á 1 a.
Pab var ljóta gestarellan á Völlum daginn fyrir þjóðhátíðina,
og allir áttu sama erindiö.
Svo stóð á, að faðir minn átti bleikálótta hryssu, tvítuga og
tannlausa. Hún var mesti gallagripur og gerði bæði að bíta og
slá, þótt bitið væri raunar tiltölulega meinlaust, þar sem merin
var alveg tannlaus- Auk þess hætti Bleikálu til að ausa, þegar
maður var kominn henní á bak, og aldrei hafðist hún svo út úr
hlaðvarpanum, að hún hoppaði ekki margar hestlengdir aftur á bak.
Pað var, eins og hún ætlaði að kasta manni upp á Stórahnúk.
Bleikála var heldur aldrei höfð til reiðar, og kom því flatt
upp á alla, að hún skyldi verða annað eins keppikefli, og raun
bar vitni.
Pegar ég var að enda við að klæða mig um morguninn, var
barið að dyrum. Eg fór til dyra og sá, að Stína á Eyri var
komin.
»Sæli nú,« sagði hún. — »Komdu sæl,« svaraði ég.
»Er faðir þinn heima?« — »Nei.«
»Hvar er hann?« — »Hann er fram í firði.«
»Ætlar margt héðan á þjóðhátíðina á morgun?« — »Pað tel
ég sjálfsagt.«
»Ætli a5 Bleikálu verði riðið?« — »Ég veit það ekki.«
»Kemur faðir þinn heim í dag?«— »Já.«
»Pá kem ég aftur seinna. Vertu nú sæll-« — »Vertu sæl.«
Pegar ég var nýkominn inn, var barið aftur. Eg fór til dyra.
Gunna í Vik var komin og bar þegar upp erindið:
»Eg ætlaði að vita, hvort ég gæti ekki fengið hana Bleikálu
lánaða á þjóðhátíðina á morgun. Hvernig skyldi það ganga?«
»Pað veit ég ekki. Pabbi er ekki heima.«
»Nu, er hann ekki heima?« — »Nei.«
»Það þarf ef til vill að halda á Bleikálu á morgun?« — »Eg
veit það enga ögn.«
»Ég ætla þá að koma aftur seinna i dag. Kemur faðir þinn
seint heim?« — »Ekki held ég það.«
Svo fór Gunna, en ég settist inn í stofu og fór að skrifa
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>