Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
VASABÓKIN
AMEDAN árshreingerning fer
fram í kínverskum
muster-um eru guðalikneskin vandlega
hjúpuð, til þess að guðirnir verði
ekki gramir, ef slælega er
unn-ið. ^
HæGT er að draga 52 km.
langa línu með venjulegum
blýanti, áður en hann er eyddur.
Það er álíka vegalengd og frá
Reykjavik til Þingvalla.
TÓBAKSJURTIN heitir á máli
vísindamanna Nicotiana.
Or-sökin fyrir nafninu er þessi:
Árið-1560 flutti franski
sendi-herrann í Lissabon, Jean Nicot,
dálítið tóbak með sér frá
Portú-gal til hirðarinnar í París.
Ka.tharinu drottningu þótti
prýðilegt að taka það í nefið, og
i þakklætisskyni við Nicot fyrir
að hafa innleitt þetta
nautnameð-al, var það nefnt eftir honum.
EINHVER einkennilegasti
rétt-ur, sem borinn hefur verið
á borð fyrir nokkurn mann, var
framreiddur fáeinum
visinda-mðnnum i París fyrir nokkrum
árum. Það var mammútasteik, af
mammút, sem drepist hafði fyrir
20 000 árum.
Svo var mál með vexti, að
nokkrir landkðnnuðir höfðu
nokkru áður fundið skrokk af
mammút, sem legið hafði í ís
á túndrum Síberíu allan ’þennan
tíma og var algerlega
óskemmd-ur. Náttúrugripasafnið fékk
grip-inn. Það fylgir sögunni, að kjötið
hefði verið safarikt og
bragð-gott en dálítið seigt!
HOSDÝRIN okkar eru yfirleitt
ekki langlíf. Sjaldgæft er
að kettir verði yfir^lö ára
gaml-ir, svín 30 ára, kindur 10 ára,
kýr 15 ára og hundar 12 ára,
en þó mun þekkjast að þeir verði
15 og jafnvel 20 ára gamlir.
LENGI hefur vofað yfir að
hæsti tindur
Gíbraltarham-arsins myndi hrynja. Til þess
að fyrirbyggja það hafa
yfirvöld-in þar fjötrað hamrabelti þessi
i jötunefldar járnkeðjur, sem
halda nú hinum ógnþrungnu
klettum á sínum gamla stað.
SPÁNN er eins og flestum er
kunnugt mjog
þurrveðra-samur,*enda er vín þar víðast
ó-dýrara til drykkjar en vatn.
Tal-ið er að hver Spánverji drekki að
meðaltali 90 lítra af víni á ári.
Til samanburðar má geta þess,
að í Danmörku drekkur hver
mað-ur 1,5 lítra af vini að meðaltali
á ári. \
28
HEIMILISRITI3D
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>