- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
50

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 50 —

Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar, — sem bjó
barninu værðir og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.
Neisti guðs líknsemdar, Ijómandi skær,
lífinu beztan er unaðinn fær,
móðurást blíðasta, börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð, sem að ávöxtinn gefur.

GUNNARSHÓLMI.

Sunnan á íslandi, í hératSi þvi sem gengur upp af Landeyjum,
millum Eyjafjalla og Fljótshlíðar, er allmikiS sléttlendi, og hefir
fyrrum verið grasi gróið, en er nú nálega alt komitS undir eyrar
og sanda af vatnagangi. Á einum statS þar á söndunum, fyrir
austan Þverá, stendur eftir grænn reitur óbrotinn, og kallaSur
Gunnarshólmi, þvl þatS er enn sögn manna, aíS þar hafi Gunnar
frá Hlí’Sarenda snúiSS aftur, þegar þeir bræt5ur ri?5u til skips,
eins og alkunnugt er af Njálu. Þetta er tilefni til smákvæðis
þess, sem hér er prentatS netSan vits.

Skein yfir landi sól á sumarvegi,
og silfurbláan Eyjafjallatind
gullrauðum loga glæsti seint á degi.

Við diuitur gnæfir sú hin mikla mynd
hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar
í himinblámans fagurtærri lind.

Beljandi foss við hamrabúann hjalar
a hengiflugi undir jökulrótum,
þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar.

En hinumegin föstum standa fótum,
blásvörtum feldi búin, Tindafjöll,
og grænu belti gyrð á dala-mótum.

Með hjálminn skyggnda, hvítri líkan mjöll,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0060.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free