Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 54 —
Réði sá, er ræður
rökum alda,
ástríkur faðir,
alls vitandi.
Því skal traustri trú
trega binda,
frænda sviptur
framar þreyta.
KVEÐJA ÍSLENDINGA
TIL ALBERTS THORVALDSENS.
(HaustiS 1838, þá er hann kom annaS sinn
frá Rómaborg- til Kaupmannahafnar).
í höfum norður
við himin gnæfir
eyja ísi skyggnd
og eldi þrungin;
þar rís hin fagra
feðra þinna
móðurmold
úr marar skauti.
Fjöld sá hún frægra
fólkbetrunga;
var-a þeim vizku
vant né snilli;
þó hefir enginn
annar sem þú
frægðar-geisli
yfir fold þá skinið.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>