Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 56 —
Ó, að þú mættir
augum leiða
landið loftháa
og ljósbeltaða,
þar sem um grænar
grundir líða
elfur ísbláar
að ægi fram.
Þar er Heklufjall
og Hofsjökull,
Balljökull, Bláfell,
og Baulutindur,
Hólmur, Hegranes
og H 1 í ð i n góða,
þar sem enn byggja
ættmenn þínir.
Myndi þá hinn mikli
mögur Þorvaldar
kynland sitt kenna
og karlmannlegt þykja;
tign býr á tindum,
en traust í björgum,
fegurð í fjalldölum,
en í fossum afl.
Myndu þá sveinar
og meyjar bláeygar
Snælands hins snjókrýnda
snúast þér í móti,
frænda færandi
frægstum í heimi
barnslegar ástir,
sem beztar kynnu.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>