- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
84

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 84 —

6, hve hann hefir eftir þráð að líta
ástarland sitt með tignarfaldinn hvíta.

Tárperlur bjartar titra þér í augum,
tindra þær gegnum fagurt lokkasafn,
sólfagra mey! því sjónar þinnar baugum
séður er aldrei kappi þessum jafn.
Þú elskar, Hulda! Eggert, foldar blóma,
ættjarðar minnar stoð og frænda sóma.

Ó Eggert, hversu er þinn gangur fagur!
tJtivist þín er vorðin löng og hörð;
kær er mér, faðir! komu þinnar dagur.
Hann kyssir, Hulda! þína fósturjörð,
Sólfagra mey! hann svipast um með tárum,
saltdrifin hetja, stigin upp af bárum.

Þú elskar hann, — þess ann eg honum glaður;

ástin er rík, og þú ert hennar dís.

Hér vil eg sitja, hér er okkar staður,

ó Hulda! þar til sól úr ægi rís.

Hallaðu lokka-höfði bjarta þínu,

mín Hulda kær! að vinarbrjósti mínu.

Hann svipast um. Nú sefur allt í landi,
svæft hefir móðir börnin stór og smá, —
fífil í haga, hrafn á kletta-bandi,
hraustan á dúni, veikan fjölum á.
Hann svipast um í svölum nætur-vindi,
um surtd og völl að háum fjallatindi.

Hallaðu lokka-höfði bjarta þinu,
að hjarta mér, sem nú er glatt og traust;
hallaðu þér nú hægt að brjósti mínu.
Hann hefir ekki starfað notalaust!

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0094.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free