- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
85

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 85 —

Seint og að vonum svo fær góður njóta
sín og þess alls, er vann hann oss til bóta.

Hann líður yfir ljósan jarðar-gróða;
litfögur blóm úr værum næturblund
smá-líta upp, að gleðja skáldið góða;
gleymir hann öðru og skoðar þau um stund;
nú hittir vinur vin á grænu engi:
„Velkominn, Eggert! Dvelstu með oss lengi!"

EGGERT:

Smávinir fagrir, foldar-skart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Prýðið þér lengi landið það,
sem lifandi guð hefir fundið stað
ástarsælan, því ástin hans
allstaðar fyllir þarfir manns.

Vissi ég áður voruð þér
vallarstjörnur um breiða grund,
fegurstu leiðar-ljósin mér;
lék eg að yður marga stund;
nú hef eg sjóinn séð um hríð
og sílalætin smá og tíð; —
munurinn raunar enginn er,
því allt um lífið vitni ber.

Faðir og vinur alls, sem er!
annastu þennan græna reit;
blessaðu, faðir! blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0095.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free