Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 104 —
viðjum reyrða og meiðslum marða,
marglega þjáða, og fá ei bjargað.
Guð er á himnum heima faðir
og hrelldra barna, hvað sem veldur
Særði bróðir, siginn í værðir,
hann sá þig glöggt undir ísi bláum.
GUÐMUNDUR KAUPMAÐUR GUÐMUNDSSON.
Undir nafni Péturs Guömundssonar, bróður hans.
„Leiður er mér sjávar sorti
og sólgáruð bára"
síðan barma brutu
blíðan mér frá síðu.
Algildum hafa öldur
ótrúar gröf búið;
grimmar djúpt í dimmum
dauðasal hann falið.
„Eigi mega á ægi
ógrátandi líta"
móðir, systur, síðan
sjá ei bróður góðan;
löngum sjá þær lengi
lauguðum sjón-baugum
öldur á og leita
að þeim, er nam staðar.
Einatt úti sýnist
undir land á stundum
seglum skautuð sigla
sæhind þægum vindi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>