Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 128 —
Spordrjúgur Sprengisandur, —
og spölur er út í haf;
hálfa leið hugurinn ber mig;
það hallar norður af.
EINBÚINN.
Yfir dal, yfir sund,
yfir gil, yfir grund
hef eg gengið á vindléttum fótum;
eg hef leitað mér að,
hvar eg ætti mér stað,
út um öldur og fjöll og í gjótum.
En eg fann ekki neinn,
eg er orðinn of seinn,
þar er alsett af lifandi og dauðum;
eg er einbúi nú
og eg á mér nú bú
í eldinum logandi rauðum.
MÓÐURMISSIR.
(Fyrir J. P. Havstein).
Leiði minnar móður
(mold grær holdi kæru;
andi sæll með öndum
unir) sæt tár væta.
Blessi jörð (en verðum
vinnu dýrri sinna)
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>