Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 161 —
þótt sumir heiti Xavier,
sumir Höjsgaard, Herman, Peer og Wandel.
AFMÆLISVÍSUR
TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR.
Við, sem annars lesum lögin
og lítil höfum vængja-slögin,
opna gerum hróðrar-hauginn, —
Herjans-uglan sat þar á.
Fagurt galaði fuglinn sá.
Síðan kvæða sendum drauginn
séra Péturs kundi.
Listamaðurinn lengi sér þar undi.
Sá hann eitt sinn sitja á ljóra,
svo sem gerði bólan stóra,
ofurlítinn nöldurs-nóra,
sem naktar voru klærnar á.
Fagurt galaði fuglinn sá.
Hann hugðist gera gys að Móra,
en greip í skott á hundi.
Listamaðurinn lengi sér þar undi.
Fýsi þig að frétta meira,
freilich kann ég segja fleira:
uppi í háum hamra-geira
honum skruppu tærnar frá.
Fagurt galaði fuglinn sá.
Hann hékk þar sona á hægra eyra,
hvergi frá ég hann stundi.
Listamaðurinn lengi sér þar undi.
11
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>