- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
175

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

175 —

ROBB OG GRÍMUR.

öllum fyrir Ingólfur sér opinn geiminn,
þegar teiknin taka heima
tvíræð yfir landið sveima.

Robb og Grímur rogast nú með rauða hettu.

— Engill verndar, allra gættu
ólærðra í nýrri hættu!

Robbur gamall rauna fer að rétta helsi;
yngra teiknið, Grímur, í galsa
guð og menn er nú að falsa.

Ideuna — eða hvað hún annars heitir —,
svo fjárinn sig ei fyrirliti,
fundu þeir i hverju riti.

Þegar skröggur skeggið helga skekur á bringu

— skegglaus enn — og skatnar þinga,
skapar hann heillir Islendinga.

Tímarímu-teiknin standa tvö i vindum,
sitt yfir hvoru líða landi,
lafa samt á einu bandi.

Annað þeirra áðan heyrðum eitthvað grenja:
„Bosje, tsarja, blessaður, chrani!"
Beljaði annað: ,,Rule, Britannia!"

Meistarar tveir á mesta lofið manna stunda;
annar vegur vit í höndum,
vörur hinn á reizluböndum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0185.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free