- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
265

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 265 —

í bréfinu sjálfu skrifar séra Jón enri fremur: „Til
upp-fyllingar innlögSu blaSi skal ég setja hér framhald af
þræöin-um í skáldsögunni:

Guðrún kemur inn með öndina í hálsinum og
segir: „Skemman stendur opin og ég held það sé
þjófur í henni". — „Það getur ekki skeð", segir
Álfur. — „Hvernig talarðu, maður; sem jeg heyrði
skurkið til hans". — Álfur var kominn úr annari
skálminni og stökk upp og hleypur út, og dregur
buxurnar á eftir sér, en flækist í þeim og dettur á
arinhellunni; brýzt samt í ofurhuga út að
skemmu-dyrunum og kallar inn og spyr: „Er hér nokkur?"

— Og svarað er: „Hér er enginn". — „Ég vissi það
gåt enginn verið", segir Álfur og læsir skemmunni;
staulast síðan draghaltur inn í bæinn og sezt á
rúm-ið sitt. — Þá segir Guðrún: „Var nokkur i
skemmunni?" — Álfur svarar: „Þar sagðist enginn vera".

— „Ertu vitlaus, maður?" segir Guðrún; „hver gåt
sagt það, nema þjófurinn?" — Álfur sansar sig,
stekkur út aftur og hittir þá svo á, að þjófurinn
er, með peningakistil i fanginu, að troðast út um
skemmudyrnar. Álfur ræðst á hann og rekur hann
undir. í þessu bili hefur frá tunglinu og sér Magnús
(þjófurinn) i augu Álfi og æpir upp yfir sig:
„Hvaða bölvuð augu!" — Álfur kreistir þá að
kverkum hans og segir: „Alls kosti á ég við þig, en
ligg nú hérna kyr á meðan ég sæki ólarreipi inn i
eldhúsið til að binda þig með". — Hann fer og
kemst nú varla fyrir helti, því blástur hafði hlaupið
i hnéð. Þegar hann kemur út aftur, er þjófurinn
allur á bak og burt, og peningakistillinn með. —
Svo var gerð þjófaleit, þýfið hittist, maðurinn
með-gekk, er dæmdur til hýðingar og sgr. Álfur leggur
sjálfur á hýðinguna.

„Svona h?r um bil var gangurinn 1 sögunni", bætir séra.
J6n vi’5.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0275.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free