- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
278

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 278 —

nú orðin eins hýr og áður. „Ég yrki varla svo
mik-ið, að okkur verði vandræði úr skáldskapnum
mín-um. En þú hafðir eitthvað eftir sjálfan þig, það
held ég verði gaman að heyra". „Já, það er satt",
sagði ég; „það voru tvö smákvæði; annað er síðan í
hittifyrra, og það er um þig, en hitt gerði ég um lóu
í gær eða fyrradag; það eru nógu falleg kvæði, sér
í lagi endinn á þínu". „Ég held ég muni úr þér
bull-ið", sagði systir mín; „lof’ mér samt að heyra það
seinna". „Mig langar til að heyra hitt fyrst", sagði
ég; „það er bezt ég fari með þau bæði". Hildur gat
ekki gert að sér að hlæja, en ég gaf mig ekki að því
og fór að þylja kvæðið það i hittifyrra:

SáuC þitS hana systur mína
sitja lömb og spinna ull?
Fyrrum átti ég falleg gull;
nú er ég búinn aS brjóta og týna.

Einatt hefir hún sagt mér sögu;
svo er hün ekki heldur nízk:
hún hefir gefiS mér hörpudisk
fyrir aS yrkja um sig bögu.

Hún er glöS á góSum degi,
— glóbjart liíSast hár um kinn —
og hleypur, þegar hreppstjórinn
finnur hana á förnum vegi.

„Gaman hafði ég af þér þá", sagði ég
kank-brosandi, og byrjaði undir eins á hinu kvæðinu; það
var reyndar ekki merkilegt; það er sona:

Snemma lóan litla í
lofti bláu „dírrindí"
undir sólu syngur:
„LofiS gæzku gjafarans,
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.

Ég á bú I berja-mó,
börnin smá, I kyrö og ró,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0288.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free