Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 284 —
Geologisk Excursion. Kalkhellur og mergillög i
sandgröfinni fyrir sunnan Vedbekk og fallegt dýr i
tinnu (galerites?).
Vedbekk — um nónbilið; — lærðar viðræður,
falleg stelpa og kaffi á 8 skl. Berfættur
samferða-maður. Æfintýrið í Fuglehave-gaard og gryfjurnar
þar í skógnum.
Hirschholm. Brauð og tevatn fyrir 11 skildinga
(Thevandsknegten!). Kirkjan og ekkjan. Geologisk
Excursion til mógrafanna. Þaðan ók ég spölkorn
með bónda og gaf honum 8 skl. Skógurinn.
Gekk ég í Gribbskógi,
gola þaut í blöðum,
örn flýgur yfir,
ormur skriður í mosa;
þá var dauflegt,
er dagskvöldi á
vargar góu
hjá viðarrótum.
Ein sat hún úti
augna-hýr
og mjúkhent
á mosaþúfu,
þar sem lambkind
lék sér í rjóðri;
kyssti ég kotbarn,
það kostar ekki par.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>