- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
296

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 296 —

við liefðum hlaupið burtu, af því okkur hefði
sýnzt bærinn vera að brenna. Nú leið og beið —;
presturinn fór í burt á annnað brauð, bróðir minn
varð úti, faðir minn sálaðist, og ég er orðinn bóndi
á Knappstöðum. Einu sinni í sumar var ég að vitja
um silunganet í ánni, skammt fyrir neðan Hreiðarshól.
Straumurinn hafði borið það upp undir bakkann og
fest það um hnaus. Ég reyndi að kraka netið upp
með stöng, og gekk það ekki greitt; því eitthvað
þungt var í því, og hélt ég fyrst það væri hnaus eða
steinn; en þegar það kom upp, sá ég, að þetta var
beinabaggi, vandlega reyrður með snæri, og var svo
fúið, að bagginn losnaði allur í sundur, þegar ég
fór að hrófla við honum. Jeg sá, að þetta voru
mannsbein gömul og skinin, og vantaði höfuðið.
Þetta þótti mér kynleg veiði, og gat ég með engu
móti skilið í, hvernig á henni stóð.––

KLAUFLAXINN.

„Sjö sinnum sjö eru 49", sagði Hallur í
Skolla-fit; ,,það er föstutíminn, og þá má enginn nefna
kjöt; — varaðu þig, maður, á að syndga!"

Ég hefi komið að honum í tunglsljósi, þar sem
hann sat á eldhúsglugga og seildist inn á rárnar, og
talaði við sjálfan sig í hálfum hljóðum. — Hann
sagðist liggja á dorg og vera að veiða og hélt það
væri hverjum manni heimilt. —

Og þegar hann kom á þingið og
sýslumaður-inn sagði hann hefði stolið, þá bar hann ekki á
móti því, nema hvað hann neitaði, það hefði verið
kjöt. „Ég hefi tekið klauflax", sagði þjófurinn, „og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0306.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free