Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 297 —
býst við að verða hýddur; en það er bezt að bera
sig karlmannlega!"
Það bar ekki heldur á honum, að hann væri
sérlega daufur. En þegar honum var lesin upp
þingbókin og hann heyrði þar stóð ,,fimm
fjórðung-ar af kjöti", þá fór hann að gráta og sagði við
dóm-arann: „Krofið var fimm fjórðungar; en hitt voru
ekki mín orð; skrifið þér heldur 6 fjórðunga og
setjið þér klauflax".
AÐ TYGGJA UPP Á DÖNSKU.
Nú er orðinn siður fyrir austan að tyggja með
framtönnunum; en það eru ekki allir, sem vita, af
hverju það kemur til.
Mér var sagt á einum bæ, þetta héti að tyggja
upp á dönsku, og þá fór ég að reyna það líka; þá
varð ég allt í einu þolinmóður og iðinn að nema, og
þó ég væri lúinn í kjálkunum og yrði að éta
hálf-tuggið á daginn, þá bættist mér tvöfalt upp á
nótt-unni. Mig dreymdi þá, ég væri kominn á k.jól og
kynni að tyggja upp á dönsku, og hló þá stundum
hátt upp úr svefninum, þegar ég sá hunda bíta bein,
eða bændur á peysu, sem tuggðu með jöxlunum.
Prestsdóttirin átti bágara en ég: hún var bæði
ung og fríð, og hafði viðkvæma samvizku, en
þrek-ið vantaði og styrkleika sálarinnar til að leggia
hart á sig og læra það, sem mest á reið: að tyggja
upp á dönsku, eins og faðir hennar; þegar hún
hugsaði út í það, flóði hún stundum öll í tárum og
sagði, guð hefði ekki gefið sér jaxlana til annars
en syndga. Þá kom Hjörleifur sterki á mórauðri
úlpu og hafði bundið reipi um sig miðjan. Hann
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>