Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 304 —
,,Kærar þakkir, fluga min góð! fyrir það þú
vægð-ir mér og saugst mig ekki svo ungan; ég skal bera
mig að borga þér einhvern tima, og blessuð sólin
vermi þig!" „Ég tek viljann fyrir verkið,
vesaling-ur!" sagði flugan; ,, en með hverju ætli þú getir
borgað mér? þú ert fastur á rótinni, og verður að
standa þar sem þú ert, þangað til bóndinn fer að
slá, eða börnin slíta af þér höfuðið". ,,Æ, ég veit
ekki, hvað þú talar um", sagði fifillinn, „en mig
langar til að lifa".
,,Sæll vertu, fífill minn!" sagði flugan
morg-uninn eftir; ,,nú hefirðu séð kvöld og forsælu,
hvernig lízt þér á?" „Minnstu ekki á það", sagði
fífillinn; ,,mér ógnar, þegar ég hugsa til þess!
Þeg-ar sólin blessuð hvarf og forsælunni skelldi yfir, —
þá kom yfir mig hrollur og dauðans þungi; ég lagði
þá saman blöðin og lokaði höfðinu og sofnaði; en
mig hefir dreymt i alla nótt ljósið og sólarylinn;
tefðu mig nú ekki, meðan sólin er á lofti; en ég
má ekki hugsa til kvöldsins; — samt langar mig til
að lifa, svo ég geti borgað þér". Flugan brosti við
og flaug lengra ofan á völlinn.
Nú leið lengi og þau heilsuðust á hverjum
morgni, þegar flugan fór út. Fifillinn eltist fljótt
og var loksins orðinn að gráhærðri biðukollu og
meir en fullsaddur á lífinu, en samt sem áður sagði
hann allt af sig langaði til að lifa, til að geta
borg-að flugunni, og stóð nú á því fastara en fætinum,
að hann skyldi gera það, áður en hann skildi við;
en flugan gerði ekki nema hló að honum og
kall-aði hann örverpi og biðukollu, og ráðlagði honum
að leggjast út af og deyja. ,,Hafðu þolinmæði,
heillin góð!" sagði fífillinn; „þakklátsemin heldur
mér við; þó ég sé köld og grá biðukolla, og sólin
ííleðji mig ekki meir, og forsælan og myrkrið hræði
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>