- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
306

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 306 —

jarðskjálfta, sjö ára stríðið var háð, Pólínaríki var
skift í parta, Teresía drottning andaðist og
Struensee var hálshöggvinn. Vesturálfan náði frelsi sínu
og frakkneskur og spánskur her varð að hverfa
aftur frá Gibraltarkastala. Tyrkjar byrgðu Stein
hershöfðingja inni í Kappahelli á Ungaralandi og
Jósep keisari andaðist, Gústaf Svía-konungur lagði
undir sig Finnland, frakkneska stjórnarbyltingin
hófst og langvinn stríð og mörg, sem þar af leiddi,
og Leópold keisari annar lagðist í gröfina,
Napoleon herjaði á Prússaveldi og Englendingar skutu
sprengikúlum á Kaupmannahöfn;
akuryrkjumenn-irnir sáðu og skáru upp, mylnumaðurinn malaði,
smiðurinn smíðaði og málmnemarnir leituðu að
auðæfum í skauti jarðarinnar. En sumarið 1809,
um jónsmessuleytið, þegar járnnemarnir í
Falún-um voru að grafa göng undir jörðunni, þrjú
hundr-uð álna djúp eða meira, fundu þeir fyrir sér
ung-lings líkama, hulinn sandi og viktrilsvatni; hann
var óskaddaður, svo hver maður gat séð svip hans
og andlitsfall, og á hvaða aldri hann var, eins og
hann væri dauður fyrir stundarkorni, eða hann
hefði sofnað út af frá vinnu sinni. En þegar komið
var með hann upp í birtuna, sáu raenn, að faðir
hans og móðir og vinir og kunningjar voru allir
dauðir; enginn gat kannazt við ungmennið, sem
svaf, og enginn vissi neitt um slysför hans, þangað
til stúlkan kom þar að, sem fyrrum var lofuð
járn-nemanum, er eitt sinn gekk til náms og kom
það-an aldrei síðan. Nú kom hún gráhærð og hrum og
gekk við hækjur, og þekkti þar unnusta sinn. Þá
hallaðist hún niður að líkinu, og fremur þó af gleði
enn trega; og þegar hún kom til sjálfrar sín, svo
að hún gat farið að tala, sagði hún: „Það er
unn-usti minn, sem ég hef syrgt í fimmtíu ár og guð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0316.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free