- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
308

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 308 —

’leggurinn við skelina: „Eigum við ekki að taka
saman, fyrst að við á annað borð liggjum hér í
sama stokknum?" En skelin var úr sjó og þóttist
töluvert, rétt eins og ung heimasæta, — en hún var
samt ekki heimasæta, — og vildi ekki gegna því
neinu. Þar var líka í stokknum gömul
gjarðar-hringja, slitin og fornfáleg; en hún var samt úr
eir. Hún sagði við skelina: ,,Ekki vænti ég þú
vilj-ir heyra mér út í horn?" og skelin sagði ,,jú", og
svo fóru þau bæði út í horn. Þá sagði hringjan:
,,Ekki vænti ég þú viljir eiga þér mann, ríkan og
forstöndugan, ekki svo mikið upp á bókarament?"
En skelin var úr sjó og skildi ekki þessa kurteisi,
þóttist lika töluvert, rétt eins og ung heimasæta,
og þagði eins og steinn. Þá sagði hringjan: ,,Æ!
segðu nú já, hjartans lífið mitt góða!" En skelin
sagði ekki annað en „nei", og svo töluðu þau ekki
meira saman.

En nú kom drengurinn, sem átti
gullastokk-inn, og tók legginn og batt um hann rauðum
þráð-arspotta og reið honum um pallinn, og seinast tók
hann látúnsbólu og råk i endann á honum; það var
ekki mjög ljótt að sjá skina á bóluna, þegar
leggn-um var riðið. „Littu nú á mig", sagði hann við
skelina; „hvernig lízt þér nú á? ættum við nú ekki
að taka saman? hjónasvipur er með okkur; þú ert
úr sjó, og ég úr lambsfæti; ég sé ekki betur, en
það geti farið vel á með okkur". ,.Á! haldið þér
það?" sagði skelin; „þér munið liklega ekki eftir,
að ég er rekin á fjöru, og er orðin forfrömuð;
kaupmaðurinn hefir fundið mig sjálfur og étið úr
mér fiskinn, og ég hefi komið á meir en einn
postu-lins-disk". ,,Satt er það", sagði leggurinn; .,en ég
er líka úr golmögóttum lambsfæti, og hefi verið
súrsaður, blessuð min! og presturinn hefir borðað

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0318.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free