Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 309 —
af mér sjálfur, og nú er búið að setja bólu í
end-ann á mér, eins og þú getur séð". „Er það nú víst?"
sagði skelin. „Svei mér, ef, — fari ég þá sem, —
skammi mig, ef ég skrökva", sagði leggurinn. „Þér
getið komið fyrir yður orði", sagði skelin, „en ég
má það ekki samt; ég er hálflofuð, að kalla má;
það er fífill í hlaðbrekkunni, eins og þér vitið, og
þegar drengurinn ber okkur út, gullin sin, hefir
hann oftar en einu sinni lagt mig niður hjá
fíflin-um, og þá hefir fífillinn sagt: „Viljið þér koma til
í það?" og ég hefi þá sagt „já" svona í huga
min-um innanbrjósts, og það álít ég hálfgildings lofun.
En því lofa ég yður, að ég skal aldrei gleyma
yð-ur". „Það er nú til nokkurs", sagði leggurinn, og
svo töluðu þau aldrei saman.
Daginn eftir kom drengurinn, sá sem átti
gullastokkinn, og tekur hann og fer með allt
saman út í hlaðbrekku. Þá var sólskin og
sunnanvind-ur, skýskuggar flugu yfir engin, og fifan hneigði
sig á mýrinni i hvert sinn og hún dökknaði, og það
gekk eins og bárur yfir puntinn á túninu, dalurinn
skein allur i grösum og blómum. Skelin lenti hjá
fíflinum, eins og vant var, því börn eru oft
vana-föst í leikum; hann leit á hana stundarkorn og
sagði: „Viltu eiga mig, hróið mitt?" ,,Það vil ég
fegin", sagði skelin. En fifillinn sagði: ,,Þú færð
það nú samt ekki, góðin mín!" og svo horfði hann
aftur í sólina, nærri því eins brosandi og áður. Þá
kom sláttumaðurinn með orf og ljá og fór að bera
út. Drengurinn varð að flýta sér burtu með gullin
sin, og skelin varð óvart eftir í hlaðvarpanum.
„Hvað er orðið af skelinni minni?" sagði
drengurinn ; „ég var með hana úti í varpa, þegar farið var
að slá". En fólkið sagði: „Hún hefir farið í heyið;
hún finnst, ef til vill, þegar gefið er kúnum, eða þá
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>