Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 310 —
i moðinu í vor". En leggurinn heyrði allt, sem
fólk-ið sagði, og honum sveið það sårt. Hann hugsaði
með sér: ,,Nú hefir skelin átt fífilinn í heyinu; það
er útséð um það". Og því lengur sem hann hugsaði
um þetta, því meira sárnaði honum, og það kom til
af því, að hann gåt ekki fengið skelina sjálfur; svo
óx ástin dag frá degi; þetta: að eiga annan, það
var svo óbærilegt. Leggurinn lá og kúrði, og vildi
feginn geta sofið, en það gåt hann ekki, og
ekk-ert nema hugsað um skelina; allt af varð hún
fallegri og fallegri; veturinn leið, og svo voru það
orðnar fornar ástir; því leggurinn hafði elzt og
var nú farinn töluvert að framast; drengurinn hætti
einu sinni að ríða honum og fleygði honum út í
skot; en ein vinnukonan fann hann og litaði hann
fagurgrænan, eins og við þekkjum, og vatt svo
upp á hann þráð; og nú fjekk hann bæði embætti
og nafnbót, og var kallaður þráðarleggur; það var
nú ofurlítill munur! En svo hvarf hann um vorið,
og enginn vissi, hvað af honum varð; það var
leit-að og leitað, af því hann var þráðarleggur, en hann
fannst hvergi. Hvað var þá orðið af þessum
embætt-islegg með nafnbót, sem enginn lifandi maður gat
fundið? Það skal ég segja þér: hann lá úti á haugi;
hann hafði óvart verið borinn út í sorpinu. Þar var
lítið um dýrðir, gamlir íleppar og skóvörp og
ann-að þaðan af verra. Leggurinn gaut hornauga til þessa
samsafnaðar, og sagði eins og von var: „Jú, jú! ég
er fallega settur innan um allan þennan hroða!"
En svo sér hann skel, ef svo mætti kalla,
kol-mórauða og skörðötta, og gott ef ekki rifna, og
það var sama skelin, sem árinu áður hafði legið í
sólskininu frammi í varpa, og ætlað sér að eiga
fifilinn, og farið í heyið. ,,Fegin verð ég", sagði
.skelin, ,,að einhver kemur hér, sem talandi er við.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>