- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
341

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 341 —

1840—42, kom Fjölnir ekki út, eins og kunnugt er,*) og var
kvæðið hvergi prentað fyr en Fjölnir hóf göngu sína á ný, með
VI. árg., 1843; þar er það á bls. 7—10. Sbr. Fundabók
Fjölnis-fél., Eimr. 32. ár, bls. 271 og 273, og e. fr. bls. 276 og 361. í
þess-ari frumútg. í Fjölni er kvæðið dálítið breytt frá því, sem það er
í ehr. Milli 2. og 3. er. er í þeim er., sem hljóðar svo:

E. fr. er í ehr. eitt er. á eftir því, sem í Fjölni og hér er 5. er.;
er það því 7. er í þeim og er svona:

Þetta erindi hefir Jónas notað i „Kveðju" til Uppsala-fundarins
1843, er hann orti fám mánuðum eftir að þetta kvæði var
prent-að; er það breytt þar, í 2. og 3. 1., sjá bls. 119. — Aðrar
breyt-ingar eru þessar helztar: 5. er., 1. 1., ehr. „bíir", f. „bý"; 3. 1.
„hver að hýsi", f. „hvert að húsi"; 6. er., 3. 1., í J. S. 401, 4to,
er (líkl. óvart, sbr. 9. er., 5. 1.) „steini", f. „stóli"; 8. er., 4. 1.,
„vita að", f. „munu"; 9. er., 2. 1., ehr. „göfgur", f. „ríkur"; 10.
er„ 7.—8. 1. eru í bréfinu eins og í Fjölni og hér, en i J. S. 401.
4to, eru þær svona:

gramur hinn glöggsæi

góðráðan þegn.

Tilefni kvæðisins var úrskurður eða bréf Kristjáns konungs
áttuna til kansellíisins, dags. 20. Mai 1840,**) þar sem hann
bauð því að låta embættismannanefndina i Reykjavik ráðgast
um, hvort ekki myndi vel til fallið, að sérstakt ráðgjafarþing
yrði stofnsett á íslandi, þing, þar sem við hlið nokkurra helztu
embættismanna landsins, er konungur tilnefndi, gætu átt sæti
hæfilega margir menn, er til þess yrðu kjörnir af íbúum
landsins, en einkum myndi nefndin þá jafnframt þurfa að ráðgast um,
hvort það þing ætti ekki helzt að nefnast alþing og vera háð á
Þingvelli svo sem alþing fyrrum, og vera að öðru leyti svo likt

*) IV. og V. árg., sem komu út meöan Jónas var heima, voru
fyrir árin 1838 og 1839.

**) Sbr. Lovsaml. f. Island, XI., 614—28; útlegging í N. félagsr.,
I., 87—88.

Göfgan konung
sæmir gildur þegn,
vitran, vel kunnandi.

Frjálsan son getur
faðir alsnotur;
þý er þræla kyns.

Ást mætir ást,

svo fær einn um laðað

hundrað — ótal huga.

Margur dropi
verður móða fögur
og brunar að flæði fram.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0351.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free