- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
345

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 345 —

Sbr. ao öðru leyti t. d. Guðfræðingatal Hannesar
Þorsteinsson-ar, bls. 279—82, og þau rit, sem þar er getið um.

Bragarhátturinn á kvæðinu er spánskur, „redondilla",
sett-ar saman tvær í hvert er., án þess að ríma saman. •— Sönglag
er ekki kunnugt um.

Bls. 92. — VIÐBÓT. — Ehr. fyrrum í eigu mag. Boga Th.
Melsteds, nú í kgl. bókasafninu í Höfn, sent Bjarna amtm.
Thor-arensen sem sendibréf, að líkindum meðan stóð á
nefndarfund-inum 1841. Það er á smáörk (st. 20 X 15,2 em.); eru vísur Bjarna
á 1. bls. — Þær hefir Jónas sett á eftir æviminningu séra
Tóm-asar í Fjölni, VI. árg., bls. 6, og fyrir ofan: „Svo kvað Bjarni
amtmaður", en bætt þessari aths. við: „Hann fór á
nefndar-fund í Reykjavik, og mun þetta vera síðast ljóðmæla hans.*)
A 2. bls. eru þessar vísur Jónasar, og hefir hann sett við hliðina
á síðari helming fyrri vísunnar athgr., sem er sett hér
neðan-máls. — Vísur Jónasar voru prentaðar í Andvara, II. árg., 1875.
— 3. bls. er auð; á 4. er utanáskriftin.

Um nefndarfundina sjá „Tíðindi frá nefndarfundum ís-

lenzkra embættismanna i Reykjavik árin 1839 og 1841.–-

K.-höfn 1842". — Um það, hvar alþingi skyldi haldið, sjá
eink-um síðari deild, bls. 20—35. — Nefndarmenn voru 10, en þeir
Bjarni amtmaður og Jón sýslumaður Jonsson voru tveir einir
fylgjandi þvi, að þingið skyldi haldið á Þingvelli.

Bls. 93—95. — FJALLIÐ SKJALDBREIÐUR. — Ehr. í
J. S. 129, fol., á lausu blaði (st. 33,2 X 20,7 cm.); er það
sýni-lega rifið upp úr ferðabók Jónasar frá sumarferðinni 1841,
Bmf. 10, fol. í 8. og 9. er. hefir hann gert dálitlar breytingar í
hr. — Orðið „reiðar-slóðir" í 4. 1. í 2. er. er ritað svo og haft
þannig í öllum útgáfum, en liklega ætti þó að lesa og prenta
„reyðar-slóðir".

Skömmu áður en Jónas dó, lét hann prenta þetta kvæði í
Fjölni, VIII., 50—53; var það áður lesið á fundi í Fjölnisfélagi
10.(?) April 1845. (Sjá Eimr. 33. ár, bls. 187).

Jónas hefir í ehr. sett innan sviga fyrir neðan
yfirskrift-ina fyrst „ferðakvæði frá 1841", en síðan breytt því í
„ferða-vísa frá sumrinu 1841"; i útg. í Fjölni hefir þetta verið haft
eins og hér er sett.

Jónas lýsir greinilega í ferðabók sinni, þeirri sömu, sem
handritsblaðið er úr, þessari ferð, sem hann á við í 2.—3. og
síðasta er. Hann fór frá Þingvöllum um morguninn,
miðviku-daginn 14. Júlí, eins og leið lá (um Skógarkot og Hrauntún)

*) Hann dó 25. Ág. s. á.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0355.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free