- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / I. Ljóðmæli, Smásögur o. fl. /
357

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 357 —

örkinni hvítu, í K. G. 31 a, þar sem 1.—4. kvæði eru í réttri röð,
er fyrirsögnin „Annes og eyjar". Hún á vel við þau kvæði, en að
sönnu ekki við 7.—12. kvæði, og hefir þó verið sett hér. •— I

1. (—3.) útg. er yfirskriftin „Á sjó og landi"; er hún ekki höfð
hér, því að hún á ekki alls kostar vel við heldur. — Neðan-við
fyrirsögnina „Annes og eyjar" hefir Jónas skrifað með blýanti:
„Með motto: „Hann er farinn að laga sig eftir Heine"." Því eru
þau orð sett hér einnig. — Hefir einhver sagt þetta um Jónas,
hann heyrt það, vitað, að nokkuð var hæft í því og sett það hér
að gamni, því að helzt gat það átt við um þennan kvæðaflokk.
— Kvæðin eru öll, 12, jafnlöng, hvert 3 er., og sami
bragarhátt-ur á öllum, sá er Heine notaði mikið, sbr. VII. kvæði (á bls. 22)
í kvæðaflokknum „Smákvæði eftir Heine" hér.

1. ÓLAFSVÍKURENNI. — Jónas hefir farið fyrir
Ólafs-víkurenni 8. Ag. 1841. Farið er undir hamrinum (2.—3. er.). —
Eggert, — sbr. „Hulduljóð" (bls. 82—88). Hann fórst á
Breiða-firði 30. Mai 1768. — 1. er., 1. 1., í frumr. „fram i", í afskr. (á
örkinni) „fram um"; í 2. er., 2. 1., „brosir" í frumr., en breytt
þar í „blikar".

2. HORNBJARG. — Jónas kom aldrei á þær slóðir, sem
hann nefnir i þessu kvæði, en að vísu nokkuð í grennd við þær
sumarið 1840, 27. Ág., að Látrum (við Látravík vestari). —
Aths. neðanmáls eru eftir Jónas; hin fyrri er skrifuð með
blý-anti á afskriftina, hin síðari er í frumr. Um Jón lærða
Guð-mundsson sjá Landfræðiss. ísl., II., bls. 73—93, og Safn til sögu
Isl., V., nr. 3. Þetta um hvíta örninn er í þeim kafla i riti Jóns
„um Islands aðskiljanlegu náttúrur", sem er um selakyn við
ís-land. Jón segir þar svo (sbr. „Annotationsbog" Jónasar 20. Jan.
1841, III. b., bls. 125—35, m. aths.): „Hafísnum fylgja og hvitir
birnir, hvitir fálkar og refar, hvítflekkóttir hrafnar, og ein
al-hvít örn hreiðraði sig i fuglabjargi á Hornströndum". •—
Síð-ari aths. (neðanmáls á bls. 123) er einkunnarorðin, sem letruð
€ru á framhlið háskólans í Kaupmannahöfn og merkja: „Hann
lítur á hið himneska ljós", eða „horfir i himinljómann", og því
hefir Jónas sett þau orð innan tilvitnunarmerkja í frumr. — I

2. er., 1. 1., hefir Jónas fyrst skrifað „þá" í frumr., en strikað
yfir og sett „er" fyrir ofan; svo myndi hann þá hafa viljað
breyta viðar í eldri kvæðum sinum.

Olaf Hansen lagði 1.—2. er. út á dönsku (Isl. Renæssance,
bls. 120).

3. DRANGEY. — Þegar Jónas reið suður aftur 1841, fór
hann upp á Mælifellsdal, 18. Sept., skoðaði þá Mælifellshnúk og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:23:59 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/1/0367.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free