Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 374 —
islenzku, sem eru i fyrstu deildinni (bls. 3—149). Sumar af
þessum gamanvisum eru kveðnar til ákveðinna manna og
eng-um öðrum ætlað að þekkja þær, og sennilega eru mjög fáar
þeirra ætlaðar til að birtast eða útbreiðast á nokkurn hátt.
Verður að taka tillit til þess, er dæmt er um þær, en hins
veg-ar þótti réttara að birta þær hér, og það bví fremur, að þær
hafa flestar verið birtar áður. Þær eru settar hér eftir aldri,
að svo miklu leyti sem unnt var, en óvíst er um sumar þeirra,
hve nær þær hafi orðið til.
Bls. 153. — FYRSTU VÍSURNAR. — 1. Eftir hr. Jóns
Borgfirðings, og hefir hann skrifað þessa aths. fyrir ofan
vís-una: „Hallgrímur Tómasson, — gamall, og mundi Jónas
Hall-grímsson, — sonur Rannveigar á Steinsstöðum, systur
skálds-ins, segir, að Jónas hafi [gjört] þessa vísu á 6. ári, og muni
hún [vera] sú fyrsta". — Þetta hr., sem er á lausu smáblaði,
er komið frá dr. Finni próf. Jónssyni. — Vísan var prentuð í
2. útg., eftir öðru hr. Jóns Borgfirðings, og er hún þar sögð
kveðin af Jónasi, er hann „var á 7. ári (líkl. heldur 7 ára?).
Hann var að klæða sig. Móðir hans heyrði hann mæla" fram
vísuna. Hún „sagði vísuna Rannveigu dóttur sinni, systur
Jón-asar, en hún aftur Hallgrími syni sínum, Tómassyni, er dó á
Akureyri 1899". — Orðið „hvíta" í 4. 1. mun eiga að bera íram
„kvíta", eins og títt er á Norðurlandi. — 2. Eftir hr. í
sendi-bréfi Stefáns Árnasonar á Einarsstöðum í Kræklingahlíð (dags.
21. Júní 1925). Segir Stefán um vísuna: „Eina vísu hefi ég
heyrt, sem hann á, að hafa kveðið, þegar hann var mjög ungur,
eitthvað á 5. eða 6. ári, og þótti honum vera seint farið í fjósið
að mjólka kýrnar". Vísan hefir verið prentuð áður í Sunnanf.,
V., 19, en að sumu leyti öðruvísi, og í Morgunbl. frá 18. Des.
1924. — í 1. 1. er „Farðu" í hr. St. Á., en í Mbl. er „Mál er".
í Sf. er 1. 1. svo: „í fjósið er svo furðu langt".
í kvæðasafni Árna H. Hannessonar, sem nú er í hrs. Lbs.,
er fremst í IV. b. (Lbs. 1405, 8vo) þessi vísa, kölluð þar „fyrsta
vísa Jónasar Hallgrimssonar":
Út á skóginn og heim aftur eg réð flakka.
Leit eg undir breiðum bakka
bjarndýr vera að fæða krakka.
Ókunnugt er að svo komnu um aðrar heimildir fyrir því,
að visan sé eftir Jónas og sömuleiðis um tildrögin til þess, að
hún hefir verið búin til.
Bls. 153. — DALABÓNDINN í ÓÞURKNUM. — Ehr. í
K. G. 31 b I, 2. kv. Vísan mun vera ort heima á Steinsstöðum
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>