Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 375 —
sumarið 1826, sem var mjög rigningasamt, svo að hey
skemmd-ust víða. Att mun við einhvern ákveðinn bónda, en óvíst mun,
hver hann hefir verið.
Bls. 154—155. — SKÓLAGLETTUR. — Eftir hr. séra Jóns
Brynjólfssonar í Kálfholti; sent Páli Melsted sagnfræðingi með
bréfi, dags. 10. Ág. 1882.
UM BENEDIKT SCHEVING. — Hann útskrifaðist úr
Bessastaðaskóla 1827. Varð prestur í Danmörku. Sjá um hann
í Guðfræðingatali Hannesar Þorsteinssonar, Rv. 1907—10, og
riti drs. Jóns Helgasonar biskups, íslendingar í Danm., bls. 21.
Séra B. Sch. er getið í Fjölni, I., 96.
CURA TIL MAGNÚSAR FRATERS. — „Cura" (lat.),
Ástundunarsemin (við skólalærdóminn). Magnús frater
(bróð-ir) er Magnús Eiríksson (frá Skinnalóni); hann útskrifaðist úr
Bessastaðaskóla um leið og Jónas. Hann varð síðar alkunnur
maður fyrir rit sín um trúmálaefni. Sjá um hann í
Guðfræð-ingatali Hannesar Þorsteinssonar, bls. 121. E. fr. II. b., bls.
10—11 m. aths. og bls. 181—82 m. aths.
TIL BÚA JÓNSSONAR. — Búi var frá Hnúki í Dalasýslu;
hann útskrifaðist með þeim Jónasi og Magnúsi; var prestur að
Prests-Bakka og prófastur í Strandasýslu. Hann var
hagmæltur, orti m. a. kvæði um Krist, sendi Jónasi það (1842) og þótti
honum það afbragðsgott (sbr. Bréf Páls Melsteds, bls. 26). •—
„Valgerður" mun vera Valgerður Brynjólfsdóttir, ein af
vinnu-konunum á Bessastöðum tvö síðustu skólaár þeirra Jónasar og
Búa. — í hr. er „þrumar" í 7. 1. og „geysi" í 8. 1.; sennilega
ritvillur, en raunar er það ekki víst.
HJÖRLEIFS REIÐI. — „Einu sinni bar þeim á milli,
Jón-asi og Hjörleifi Guttormssyni; þá kastaði hann (þ. e. Jónas)
fram þessari stöku", skrifar Jón Brynjólfsson um fyrri vísuna;
en um hina segir hann, að hún hafi orðið til um sama leyti. -—
Hjörleifur var sonur Guttorms prófasts Þorsteinssonar á Hofi.
Hann útskrifaðist úr Bessastaðaskóla 1832, þrem árum síðar
en Jónas. Hann varð prestur að Skinnastað og síðar að
Völl-um. — I 4. 1. stendur i hr. „Oxneyingar"; getur það varla
ver-ið rétt. — Sennilega er 3. 1. einnig færð úr lagi.
Bls. 155. — UM STÚLKU, SEM REIÐ MEÐ
SKUGG-HATT. — Eftir hr. séra Jóns Brynjólfssonar í Kálfholti. -—
Skugg(a)hattar voru eins konar reiðhattar, með afarmiklu
skyggni, er tíðkuðust á fyrri hluta 19. aldar.
Bls. 155. — SNÍKJUDALLURINN. — Ehr. í K. G. 31 b I,
9. kv., og er yfirskriftin á dönsku: „Snyltegæsten". — Sýnilega
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>