- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
29

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 29 —

get ekki heldur gert neitt úr, eins og ekki er von,
þar sem bæði vantar i og hitt er sjálfsagt sumt
rangt. Fjalirnar úr Flatatungu-skálanum gamla
eru merkilegar; ég ætla það muni vera dagsanna,
að þær séu úr fornöld; þilið hefir verið sléttheflað
og rispaður fyrir myndunum skurður í tréð, eftir
strikunum, sem sjást á blaðinu. Nú eru ekki eftir
nema 4 fjalir, sem standast ekki á, og eru komnar
í baðstofusúðina. Spjótsleifar þær, sem ég gat um í
sumar, eru ekki hjá mér sem stendur, því þær eru
geymdar með öðru dóti mínu uppi i Eyjafirði, og
veit ég ekki, hvort ég get nálgazt þær áður en skip
fara héðan, en verði það ekki, skal ég senda yður
þær með póstskipi; en eitthvert djásn — ekki veit
ég hvað það er —, sem fundizt hefir nálægt
Salt-vík í Þingeyjarsýslu, blásið úr jörðu, læt ég fylgja
þessu bréfi. Amtmaður Bjarni hefir ritað yður um
fundinn í holtinu fyrir sunnan Möðruvelli í
Hörgár-dal. Þegar ég kom að Ljósavatni og fór að vitja um
rúnasteininn þar, var hann hvergi að finna. Fólkið
á bænum sagði hann hefði brotnað í 3 stykki, og
myndi vera kominn þar einhvers staðar í veggi, en
dr. sál. Brynjólfsen hefði einhvern tima komið þar
og lesið á hann og sagt, að á honum stæði Hallmóra
Þorgeirsdóttir. Seinna frétti ég í öðrum stað, að
hann hefði að vísu brotnað, þar sem hann hefði
verið hafður fyrir hestastjaka, en siðan myndi
pört-unum viljandi hafa verið skotið undan, af því
pilt-ungar hefðu af glensi verið búnir að bæta einhverju
óþörfu við letrið á honum. Svona fara þær alla vega,
fornleifarnar okkar.

Nú kemur að lakasta tiltækinu fyrir mér.
Far-arefni min eru þrotin, eins og líklegt mun þykja,
eftir allt þetta flakk í sumar, og samt verð ég, af

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0037.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free