- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
30

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 30 —

því mér sýnist það nauðsynlegt, að fara suður og
vera þar í vetur; að sönnu hefi ég nú beðið
prófess-or Forchhammer að útvega mér eins árs lengingu
á styrk þeim, sem ég áður hefi haft af sjóðnum til
almennra þarfa, og þykir ekki ólíklegt, að það muni
heppnast; en þótt svo verði, næ ég ekki til þess í
bráð, enda verður dráttur á eins og vant er, að það
komist í kring. Ég hefi þess vegna ráðizt í að taka
til láns upp á kunningja minn í Höfn 50 dali, til
styrks handa mér í vetur, og bið yður nú að bera þá
nauðsyn mína upp fyrir félagsdeild vori’i, að hún
borgi fyrir fram þessa 50 dali, svo
skuldheimtu-maður minn þurfi ekki að bíða eftir þeim, en taki þá
aftur af áður nefndu stipendíi, eða hverjum öðrum
styrk, sem ég verð að fá og fæ einhvers staðar frá
áður en lýkur. Ég hefi falið herra K. Kristjánssyni á
hendur bæði móttöku og tilbaka-borgun þessara
pen-inga, og hann talar við yður nákvæmar um það efni.

Fyrirgefið mér, herra prófessor! þennan
flýtis-seðil; — bréfaf jöldinn, sem að mér kallar, og aðrar
annir, hafa neytt mig til að kasta til hans
höndun-um. En eg hefi ásett mér að gera yfirbót, ef ég lifi
til þess póstskip fer í vetur.

Með ást og virðingu

J. Hallgrímsson.

TIL FINNS MAGNÚSSONAR.

Akureyri, 3. d. Okt.m. 1839.

Hávelborni, allrahæstvirti herra etatsráð!

Amtmaður Bjarni sagði mér það fyrst í gær,.
að þér hefðuð nú í sumar verið sæmdur þessari

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free