- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
35

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 35 —

hvað fyrir mig. Myndi Rentukammerið ekki
eitt-hvað vilja styrkja [mig] eins og i fyrra? Það er
bág-ast, að ég get ekki núna komið til þess Indberetning
minni, en pr. Forchh. veit nokkuð um atgjörðir
mínar af bréfinu og sendingunni i fyrra haust. Eins
árs lenging á stipendii minu gamla vona ég
sjálf-sagt að fá undir einhverju nafni; ég hefi beðið
Kristján að tala við yður.

Guð styrki yður til alls góðs.

Yðar auðmjúkur elskandi

J. Hallgrímsson.

Fyrirgefið mér þetta!

Ég skrifa það í bólinu.

TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR OG
KONRÁÐS GÍSLASONAR.

Reykjavik, 4. Marz 1840.

Elskulegu, góðu vinir!

Hvernig líður ykkur? Ég er ofur-lasinn og hefi
verið það, rétt að kalla, síðan ég kom hingað suðurr
snemma í Nóvember. Ég ætla að segja G.
Hjálm-ars. svo sem lækni frá veikindum mínum, og getið
þið síðan spurt hann. Ég vona samt ég lifi af, að
minnsta kosti aðra stundina, og langar raunar til
þess líka, mest vegna þess, að ég þykist helzt of
lítið þarft vera búinn að vinna; — hugsið þið eftir
því. — Hvað kemur mikið af svörum til
nefndarinn-ar frá prestum o. s. frv., og hefst hún nokkuð
að? Hvað líður Fjölni? Annar hvor ykkar eða báð-

3*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0043.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free