- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
36

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 36 —

ir verðið að spyrja Ursin að, hvort fáanleg séu hjá
honum „Aftryk" af töfl. hans við hans „pop.
Fore-drag over Astronomien" til að nota við ísl. útl., og
hvað þau myndu kosta, og låta mig svo vita; og
bókina sjálfa þyrfti ég að fá, K.! Því styttra sem ég
nú skrifa, því lengra skrifið þið með fyrstu skipum.
Aldrei hefir mig langað eins mikið og núna til að
gera eitthvað; svona er maðurinn!

Segið þið Magnusen, að það sé á svo nefndum
Þinghól upp með Gljúfrá í Stafholtstungum, að
baulusteinar séu grafnir upp með spjótamyndum á
o. s. frv., — en ekki letri, það ég hefi heyrt —,
þeg-ar verið var að byggja þar fjárrétt. Einn þeirra er
nú hestasteinn í Tandraseli. Eitthvað af blöðum væri
gaman að sjá sem fyrst, þá sleppið þið líka fyrir
pól. fréttunum.

Ykkar elskandi

J. Hallgrímsson.

TIL DEILDAR HINS ÍSLENZKA
BÓKMENNTA-FÉLAGS í REYKJAVIK.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, með hve
mikilli kostgæfni vísindamenn um þessar mundir
gefa gætur að veðráttufari og loftslagi um öll lönd,
þar sem því verður við komið. Er það og engin
furða; því bæði er það fróðlegt í sjálfu sér að
vita, hvernig þessum atburðum hagar til hvarvetna
um heimsbyggðina, og grennslast eftir sambandi
þeirra sín á millum, rökum þeim, er þeir eru af
sprottnir, og lögmáli því, er þeir hlýða, enda eru
menn nú betur en fyr farnir að sjá, hvernig allt það,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0044.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free