Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 37 —
er jörðin elur á hverjum stað, og ásýnd hennar sjálf,
breytist á ýmsa vegu, eftir því sem veðráttufar og
loftslag er til; og er þekking á slíkum hlutum —
þótt hún sé upphaflega fengin með vísindalegum
rannsóknum — ekki síður gagnleg í
búnaðarhátt-um manna og allri atvinnu en hver sú önnur, er
sízt þykir mega án vera.
Vér Islendingar höfum samt til skamms tíma
ekki átt kost á að bera ættjörðu vora í þessu tilliti
saman við önnur lönd, svo að vér til að mynda
get-um með sannindum sagt, hvað hér megi þrífast og
hvað ekki, því oss hefir, að kalla má, gjörsamlega
vantað réttar sagnir um veðráttufar vort; höfum
vér þá og ekki heldur lagt fram vorn skerf til
hinn-ar almennu, vísindalegu rannsóknar um þessi efnL
Og þótt nú sé vel upphafið og góð aðstoð
fengin, þar sem veðurbók (Obs. Met.) herra
Thor-stensens landlæknis er á prent komin, brestur
samt mikið á, að nóg sé að gjört í þessari grein.
Mér virðist nú ekki betur en það sé fyllilega
sam-boðið tilgangi félags vors að gjöra nokkuð þessu
til eflingar, og þess vegna leyfi ég mér að bera
upp fyrir hinni heiðruðu félagsdeild, með hverju
móti mér virðist hún geti bezt og haganlegast
kom-ið því svo fyrir, að þeim, er iðka veðurfræðina, verði
búið nokkuð í haginn, að því leyti, sem hér eru
föng á.
Nú er það að vísu satt, að svo mikils vert sem
það er, að hiti lofts og lagar, lofts þyngd, regnkoma
og snjófall hefir nú í margt ár verið athugað hér
á einum stað með áreiðanlegum verkfærum og
vís-indalegri aðferð, þá er það samt ekki einhlítt,
með-an það er ekki gjört víðar á landinu. En samt vil ég
ekki, að svo stöddu máli, ráða félagi voru til að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>