- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
153

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 153 —

Bardeníleth biður að heilsa og segist nú vera að
leggja sig eftir íslenzku. Lifðu vel.

Þinn

J. Hallgrimsson.

TIL PÁLS MELSTEDS YNGRA.

Sórey, 27. Sept. 1843.

Elskulegi Páll minn!

Þér myndi nú væntanlega ekki þykja neitt
undar-legt, þó ég skrifaði þér langt bréf héðan úr róseminni
í Sórey, og hugsa með þér, ég hefði ekki haft annað að
gjöra. En ég skal nú sýna þér, hvort ég hefi ekki
haft annað að gjöra, og svo sem til sannindamerkis
skrifa þér ekki nema nokkur orð, rétt svo þú sjáir
ég lifi, og sé ekki öldungis búinn að gleyma þér. Ég
lifi hér annars eins og blóm í eggi; — ég er hjá
Steenstrup og við erum í samvinnu að fást við
is-landica, og ætlum nú að bera okkur að koma saman
bók um þetta allt, sem dálítið gagn verði í; — og til
hvíldar geng ég eða ríð eða keyri um landið og
skóg-ana hér í kring, ræ líka stundum á báti um vatnið
með kvennfólkið okkar, eða geng til Hauchs eða
Ingemanns að tala við þá til fróðleiks og skemmtunar.
Mér er mikið þægilegt að vera boðinn og veltekinn
hjá þeim báðum, hvenær á degi sem vera skal. Ekki
gleymi ég nú samt fyrir þessu félaginu okkar og
landlýsingunni, en þar vantar ekki mikið á, að ég
hafi reist mér hurðarás um öxl, því verkið er bæði
mikið sjálft og undirbúningurinn því meiri. Lakast
af öllu er, að félagið getur ekki boðið mér neitt við-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0161.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free