Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 166 —
Kongurinn 1 Frakklandi bjó á beztu jörðinni,
norður við sjó. Túnið er eins stórt og Hólmurinn í
Skagafirði, rennslétt og fagurt eins og spegill — svo
kvenfólkið, sem rakar, verður að ganga með
stutt-buxur innan undir — og silfurtúngarður allt um
kring. Fólkið var allt úti við heyið, nema drottning
og kongur, sem eru gömul; hún sat inni í
baðstofu-horni og var að spinna á gullsnældu, en hann sat hjá
með kórónu sína, og voru þau að tala um
rikisreikn-ingana og allan búskapinn. Þá kom inn einn af
fólk-inu (en það eru allt kongssynir og kongsdætur, eða
jarlar og kammerherrar og biskupsdætur). „Séra
Filippus!" segir hann (því kongurinn heitir séra
Filippus), „það er skip á sundinu, og við höldum það
sé drottningarskipið að handan; seglið er blátt og
rautt".
„Heyrirðu það, kona!" sagði kongurinn: „þú átt
von á gestum; ég geng sjálfur on’að sjó, en sjáðu
um á meðan, að verði sópað og heitt kaffi, og svo
verðurðu eitthvað að hugsa fyrir miðdeginu". „Ég
er öldungis hlessa", sagði drottningin; „Marmier
minn!" (því það var Marmier, sem inn kom; hann er
nú orðinn jarl) „farðu" segir hún „út og láttu hann
Guðmund litla hlaupa á næsta bæ eftir rjóma".
„Hvar er hann Guizot?", sagði kongurinn, þegar
hann kom út; „ég ætlaði að låta hann verða mér
sam-ferða. — Guizot, Guizot! Hver þremillinn er orðinn af
manninum?" En Guizot heyrði ekkert — hann lá
sunnan-undir vegg og var að lesa 7 ára gamlan Skirni,
sem félagsdeildin á Islandi var nýbúin að senda
honum.
Þegar skipið kom að landi, renndi það upp að
bryggjunni — þvi þar er bryggja eins og i kaupstað
— og drottningin úr Englandi sté i land. Kongur-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>