- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
172

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 172 —

Bráðum verður sett gymnasium heima, segir þúr
og ég muni geta farið úr görmunum!; ertu að gjöra
gabb að mér? Þú mátt úr flokki tala, sem hefir a5
vísu embætti að ganga; — guð láti aldrei
drambsem-is-djöfulinn snúa þér frá því, sem við höfum báðir
álitið sóma vorn og heiður hingað til, að kenna
ung-um íslendingum, — þú hefir, segi ég, að embætti að
ganga og efar þig — og ég vildi heldur geta orðið
kennari við góðan skóla á íslandi en allt annað. Þar
get ég enn unnið skamma eða langa stund, hver veit
nema 20 ár, ef guð vildi lofa, og hvað mætti þá ekki
vera létt upp koldimmunni úr íslandi, — helvízkri
holtaþokunni, sem felur bæði líkama og anda. —
Höfum við ekki sagt, að landið er fagurt og frítt,
hefir þú ekki sagt það sjálfur? En hver skilur
feg-urðina, nema hann geti notið náttúrunnar jafnframt
með viti og þekkingu; því eintóm mannleg tilfinning,
sem hefir lifað í okkar unglingum, deyr út aftur
með líkamanum, ef hún er ekki studd við þekkingu
og djúpa ást á útborði andans. Þú átt að komast í
skólann, hvað sem mér líður, en þú átt líka að koma
mér þangað, ef þú getur. — Þú átt, til að mynda,
ekki að låta sleppa úr hendi þér annað eins
tæki-færi og þegar Engelstoft spurði um Fuglepræ til
að koma mér inn og fyrst og fremst að ná
embætt-inu. Settu allt á stað til að koma því í lag. — Ég
skal koma á eftir og sprengja öll púðurgöngin, —
en kem nú, sem stendur, ekki við að grafa þau.
Segðu Bryn. og séra Pétri og hverjum, sem gagn
er að, allt þetta sama. Ég get kennt náttúrusögu og
náttúrufræði (Naturhist. og Fysik), jarðfræði og
hvað, sem vill af mælingu og reikningi. Ég hefi
grann-kynnt mér hér einhvern bezta skólann í
Dan-mörku, meir en hálft ár, og hefi enn heilt ár eða

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0180.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free