- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
175

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 175 —

þarft og fýsilegt, að ná einhvers staðar í hemilinn
á því, til að vera ekki áhaldalaus, hvað sem
mað-ur kynni þurfa að låta prenta?

Hvað líður nú verzlunarmálefninu? Mér
leið-ist hér að fá ekki að vita neitt, hvað ykkur verður
ágengt á fundum.

Veiztu nokkuð um skólann heima, og um allt
það mál? Ég geri ráð fyrir, hnífurinn standi enn í
þessari gamalkú. Myndi nú ekki tími til að koma
einhverri hreyfingu á það, meðan þeir eru að gutla
við Gymnasierne hérna í Danmörku. Eitthvað
verð-ur þó úr að ráða, og ég sé ekki, hvernig
skólastjórnar-ráðið fer að forsvara, að låta. alla endurbót dragast
svona ár frá ári. Ef þú skyldir vita nokkuð, hvað
þessu liður, og hvað vera muni í brugg-gerð um
fyr-irkomulagið, ef nokkuð er, þá væri mér þökk á, þú
vildir stinga því að mér. Mér er nefnilega, þér að
segja, heldur í mun, að komast þar einhvers staðar að,
með dálítið af Naturhistorie og Fysik og Geografi, og
koma jafnframt á stofn náttúrusafni við skólann,
sem enginn myndi eiga hægra með en ég, þar sem ég
þekki svo marga, sem fegnir vildu leggja sitt hvað
til, bæði gefins og í skiftum fyrir allra handa
islan-dica. Ég er hræddastur af öllu um húsrúmið, ef
ekkert tillit yrði tekið til slíks um leið og nýja
skólahús-ið er byggt. Hvernig myndi gjörlegast að minna
við-komendur á það? Húsrúmið þarf lítið sem ekkert að
auka, ef rétt er á haldið og tillit tekið til safnsins,
þegar byggt er; því það er alkunnugt, að slík söfn
prýða. fremur stofur en lýta, og geta vel verið í þeim
stofum, sem ekki eru brúkaðar dags daglega (til að
mynda samkomustofu kennaranna, korridor etc.).

Er það ekki eins og ég segi, að hvað gamlir
sem kongarnir verða, þá deyja þeir nærri ævinlega

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0183.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free