Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 176 —
seinast. „Hafðu þolinmæði, þú getur enn orðið
kong-ur í Svíþjóðu". —
Mig er nú farið að langa mikið eftir póstskipinu.
Ég finn glöggt á mér, að ég frétti eitthvað Ijótt með
því, annaðhvort Heklugos eða manndauða eða „i al
Fald" einhvern vinamissi. Mér sýnist mál, það fari
nú að koma.
Myndir þú nenna að skrifa mér einhvern tíma
nokkur orð.
Þinn
J. Hallgrimsson.
TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR.
Saurum, 2. April 1844.
Elskan mín góð!
Þakka þér fyrir öll tilskrifin og sendingarnar;
ég skrifa þér á morgun með bréfapósti. Ó nei, ég er
frískur, en ert þú lasinn, veslingur? Gleddu þig við
vorið og góða von. Skólinn, Brynjólfur! — Ég
skrifa þér á morgun.
Þinn
J. Hallgrimsson.
Láttu nafnið standa; ekki er vert að draga
mig út, þó ég hefði heldur viljað hófsemd en þetta
tótalóh. Ég held enginn vilji vera í veizlunni okkar,
lagsmaður!
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>