- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
177

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 177 —

TIL KONRÁÐS GlSLASONAR.

Saurum, 2. Apríl 1844.

Ekki veit ég, dýrmæti Sir! nema þú kunnir nú
að þykjast eiga bréfsnuddu hjá mér fyrir allar
^eitingarnar. Ég myndi nú samt fyrst um sinn låta
þar við lenda að þakka þér ástsamlega fyrir mig
og undirgangast að vilja þín jafnan minnugur vera
til hins bezta. Ég hefi annars dregið að skrifa
ykk-ur núna, til að tefja mig ekki á þvl, af því ég
ætl-aði að bregða mér inn í bæinn um páskana, en sé
nú, þegar til kemur, að ég hlýt að sleppa þvi
ferða-lagi af „peningaástæðum" og eiga undir, hvort
mér verði hægra um hönd um sumarmálin. Ég
■sendi þér aftur blaðið þitt; ég held það geti
flakk-að svona; ef ég ætti nokkuð um það að segja,
þá þykir mér það vera heldur langt, þótt ég á hinn
bóginn sjái ekki, hvar haganlegast myndi vera að
stytta það. Ég sendi þér nú bréf séra Jóns á
Breiða-bólsstað til mín, og bið þig að lesa það með
Brynj-ólfi. Hvað liður annars likræðunum, og hverja
ráð-stöfun hefir ekkjan gjört fyrir þeim? ; ég er því
ókunnugur. Sömuleiðis sendi ég Fjölnismönnum
skýrslu Þórðar Jónassonar um ástand
Landsbóka-safnsins; þú manst, ég ritaði biskupi í fyrra eftir
bón ykkar til að fá hana. Sjálfsagt er, að hún er
nú ekki mjög greinileg, en betri er hún samt en
ekki neitt og mætti liklega hafa not af henni, ef
menn hefðu kataloginn jafnframt, en ég veit ekki,
hvort hann fæst hér. Ég hefi beðið Gisla að senda
mér bréfin min; gætirðu ekki um leið komið til mín
korrektúrum af Fjölni, dispút. séra Péturs og
einhver ju þess háttar, mér til gamans um páskana?

12

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0185.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free