- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
178

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 178 —

Hvar býrðu nú aftur? Þú munt hafa flutt þig í
fyrra dag. Skólinn, Konráð!; hvernig á nú að fara.
að?; og prentverkið þá, og alþing. Fiedler hafði
lofað mér dálitlu um saltfisk, sem ég hélt væri ekki
mjög óþarft, en Fiedler er ekki kominn með það
enn; og sjálfur hafði ég ögn um hvali, ef myndirnar
mínar yrðu búnar. Heilsaðu Grimi frá mér og berðu
kveðju mína á laugardagsfund. Gleðilega páska,
elsk-an mín!

J. Hallgr.

TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR.

Saurum, páskadag 1844.

Elskulegi Brynjólfur minn!

Gleðilega páska, góðurinn minn, og gott er
veðrið núna. Er ekki vorsólin farin að bita ögn á
þig?, og ekki held ég skattbændurnir fækki mjög
mikið í Norður-Múlasýslu árið að tarna, og ekki veit
ég, nema Stefán gamli langur á Úlfsstöðum hafi
einhver ráð með að setja þig inn í embættið.

Ég lofaði þér bréfi um daginn og sveik þig þá
og kem ekki við að skrifa langt i dag, þó þú trúir
því varla, ef til vill. Ég hefi líka lítið að skrifa um,
en hér gildir að gegna eitthvað þvi, sem þú nefnir
skólann. Hvernig fara eigi að agitera? Það veit ég
satt að segja ekki. Hér er um að gera að fá
skóla-stjórnina til að setja embættið á stofn og koma upp
heima náttúrugripasafni, svo brúkanlegu, að það
verði notað til kennslunnar, og leggja til svo mikið
af bókum sem allra-nauðsynlegast er til að geta

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0186.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free