- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
179

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 179 —

unnið með og gert nokkuð að gagni. Allt þetta
kost-ar nokkra peninga, og svo er húsrúmið, sem verst
verður með, ef til vill, þótt það þurfi öngvan veginn
að vera stórt. Það er sjálfsagt, að ef þeim er alvara
með að låta íslenzka skólann geta hér um bil
svar-að til þessara gymnasia, þá sýnist sem þeir geti
öngvan veginn sleppt náttúrufræðinni, og þess utan held
ég, að ég gæti tekið að mér að kenna dálítið í fysik,
ef vildi, og ég fengi hin nauðsynlegustu áhöld. En
hvernig fara að agitera? Konráð heldur, ég eigi að
reka memorial beinlínis í direktionina, og segja
henni og sýna, hver nauðsyn sé á, náttúrufræði
verði kennd heima; en mér finnst það einhvern
veginn vera fruntalegt, og að ég komist ekki
bein-línis að því máli, fyr en direktionin væri fyrst
bú-in að ákvarða um þessa kennslugrein, og að ég þá
geti fyrst sótt um embættið, eða hvað sýnist þér?
En til að koma fótum undir þetta mál, og fá d. til
að stofnsetja þessa kennslugrein, til þess þarf
einhvern, sem er ofar á strái en ég; nánustu
forstöðu-menn skólans, — skólinn sjálfur og
stiftsyfirvöld-in — ættu að gera það, eða réttara sagt vera búin
að því. Hvað heldurðu, ætli það væri nema til
tómrar bölvunar að koma einhverjum artikula um
þetta inn í blöðin?; heldurðu ekki, hvað vel og
var-lega sem hann væri saminn, að það yrði að minnsta
kosti til lítils gagns? En getur þú með öngvu móti
komizt eftir, hvort nokkuð eða ekkert hefir verið
ráðgert um þetta i direktioninni?

Ég bið ástsamlega að heilsa dr. Pétri, með
þakklæti fyrir disput; eins Konráði og G. Thor.,
sem bráðum fá bréf frá mér. En hvað líður nú
skipaferðum, heilla-karl?; mér riður á að vita það
sem greinilegast, og eins um brennisteininn, hvern-

12*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0187.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free