- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
213

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 213 —

öðru kringum vorn jarðarhnött, og flytja í iriillum
allra dauðlegra erfiði og vökur, hviid og endurnæring,
að boði guðs allsherjar.

Hver fær yfirvegað þessa vísdómsfullu
niður-skipun, án þess hjarta hans fyllist af undrun og
til-beiðslu. — Mannsins sál er þannig varið, að sjón hins
mikla og óskiljanlega getur ekki annað en vakið hans
eftirtekt; — og hversu mikil, hversu óskiljanleg eru
oss ekki verk hins eilífa? Vér sjáum þeirra yfirborð,
en innri partar þeirra munu um aldur verða faldir
fyrir augum hinna dauðlegu. — Vér sjáum
verkan-irnar, en þær fyrstu verkandi orsakir þekkjum vér
ekki. Vér sjáum sólina renna upp og ganga undir;
frá austri til vesturs flyzt hún um himinsins
ómæl-anlega rúm; en — hvað takmarkar hennar volduga
gang yfir skýjunum? Hvað elur ljós hennar, að
alda-raðir fái ekki deyft það? Vér sjáum grasið spretta; en
— hver hefir þekkt þann kraft náttúrunnar. sem
lífgar frækornið í moldinni? Hver hefir þekkt þann
kraft, sem svo haglega myndaði blómstur
markar-innar og prýddi þau sínu skarti? Nei — öll verk
vors guðs eru óútgrundanleg speki og vísdómur!
Mannanna börnum er einungis leyft að undrast og
tilbiðja, — en einnig þessi skammsýni minnir oss á
skaparans óendanlega fullkomlegleika. Svo lítið, sem
vér sjáum af alheimi, og svo litið, sem vér fáum
skil-ið þetta, sem vér sjáum, er það þó ærið nóg, til að
leiða jafnvel þann þankalausasta frá nautn
náttúr-unnar gæða til að skoða náttúrunnar höfund í
hennar vísu og gæzkufullu niðurröðun. í öllu sínu
víð-lenda ríki hefir vor guð eftirskilið ljósustu spor síns
almættis, sinnar speki og gæzku; og allir þess partar,
sem svo ríflega eru lagaðir eftir vorum margbreyttu
þörfum, hrópa til vor, að tilbiðja og elska gjafarann.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0221.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free