Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Þetta inndæla skoðunarefni frambýður sérhvert
tíma-bil; vordagurinn minnir oss á guðs gæzku og
skamm-degisnóttin á hans almætti, — því himnarnir
fram-telja hans dýrð. — En að skoða allt þetta
sam-siða tímans viðstöðulausu rás, sem umbreytinguna
hefir í fylgd með sér, þar til eru tíma-skiftin einkum
hentug. — Það er verðugt skoðunarspil, að sjá
hvernig jörðin — þessi allra dauðlegra sameiginlegi
far-arskjóti — flytur oss viðstöðulaust kringum sólina,
og takmarkar um leið það jafnlanga tímabil, sem vér
almennt köllum ár. — Svo langri ferð höfum vér nú
í kvöld enn þá einu sinni aflokið. Árið er umliðið
— eilíflega er það oss horfið, og ekkert, nema vor
verk, fylgja oss. Dagar og vikur, mánuðir og ár á ár
ofan, hverfa á bak oss, eins og straumur, inn í
um-liðna tímans takmarkalausa haf, og smátt og smátt
flyzt með þeim burt af jörðu, það sem heimurinn á
hverju tímabili kallar skrautlegt og mikilsvert, —
auður og metorð og völd, allt þetta sést ekki framar;
árin hafa jafnóðum flutt það burt með sér, — allt
þetta sést ekki framar, — en vor verk fylgja oss, —
þessir mannsins óræku dómarar skulu ekki við hann
skilja. Drottinn — sá réttvísi dómari — vildi þau
sífelt fylgdust með oss gegnum þetta. jarðneska líf,
og flyttust með oss, til eilífs vitnisburðar, yfirum
til sinna safnaða, inn á það rétta endurgjaldsland,
hvar laun af guði biða vorra góðverka. — Hvilik
uppörvun að vanda vor verk, að vér eigi síðar bera
megum kinnroða fyrir þetta vort skart, i hverju
vér skulum fram koma fyrir dómstól mannsins
son-ar, á þeim mikla degi hans tilkomu, — þegar timinn
hefir flutt þennan heim með öllu sínu glysi frá
aug-tim þeirra, sem jörðina byggðu, og ár og dagar hafa
ei lengur stað.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>