Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 221 —
bæði fyrir hreppstjóra sjálfan, hreppsbændurna
hvern um sig, og hreppinn svo sem félag.
1. Hreppstjórnarembættið er svo heiðarlegt og
nytsamt, að hver, sem þjónar þvi dyggilega,
verð-skuldar þökk og heiður sinna félagsbræðra. Þetta eru
þau laun, sem hann á að fá fyrir starf sitt og mæðu,
og þau eru hverjum manni svo dýrmæt, sem metur
þau réttilega, að hreppstjórinn verður að hafa gleði af
að uppskera þar sem hann sáir, og vera bæði vinsæll
og mikils metinn af hreppsbændunum. En það mun
honum bezt heppnast, ef embættisstörf hans liggja
ljós og opinber fyrir almennings sjónum. Góðir menn
hafast ekkert að, sem skýlu þarf yfir að draga, og
hvar sem athafnir embættismanna eru huldar í þoku,
þar er líka tortryggnin á aðra hönd og spáir í
eyðurn-ar, og spinnur togann milli hinna einstöku atgjörða,
sem almenningur þekkir, þangað til allt sýnist vera
orðið að neti yfir einhverri gröf eða gildru, sem hún
bendir mönnum á, og biður þá að forðast vélina.
2. Hreppsbóndanum ríður þó enn meira á, að
sveitarinnar ástand sé lagt fyrir almennings sjónir,
og það lítur svo út, að hann eigi fullan rétt á að
krefjast þess. Hvað mættu þeir segja,
hreppsbænd-urnir sumir hverjir, sem svara til sveitar og halda
hreppsómaga, og vinna baki brotnu til að geta
stað-ið í skilum, og vita þó ekki á hvaða grundvelli félag
þeirra er byggt, og hvort því er skynsamlega
fyrir-komið, því síður að þeir viti nokkurn hlut, hvort þeir
bera byrðina með öðrum hreppsbændum eftir réttum
jöfnuði, eða hvort á þá er hallað af hlutdrægni
embættismanna. Engin von er á, að þessir menn gjaldi
góðfúslega það, sem þeim ber úti að låta til
almennings þarfa, af því þeir geta ekki lifað við þá
tilhugs-un, að þeir séu bræður i nytsömu félagi, og viti hvers
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>