Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 222 —
það þurfi við; því það verða þeir að vita, eigi þeir að
þjóna því með góðu geði. Bezta ráðið að rýma burt
þessari vanþekkingu á sínum högum og ógeði á að
taka þátt í almennings kjörum, er eflaust það, að
birta þeim hreppsreikningana öllum saman, hvort
þeir vilja það eða ekki — því sumir hafa líklega ekki
sinnu á, að íhuga þá í fyrstunni — og skýra þeim frá
öllu ástandi sveitarinnar, eins greinilega og orðið
getur. Þá mun ekki líða langt um, áður félagsandinn
vakni í bændunum, og þá er ekki unnið til ónýtis;
því þegar hann er vaknaður, greiða þeir allt með
góðum hug, sem félag þeirra viðþarf, og sé á
ein-hvern hallað, hvort sem það er vísvitandi eða ekki,
kemst það upp í tækan tíma, svo rangindum og
hlut-drægni verður ekki framgengt.
3. Hreppurinn svo sem félag hefir af þessu mesta
nytsemi, og liggur það í augum uppi af því, sem
þeg-ar er sagt. Heillir og framför hvers og eins í stóru
og smáu eru sannarlegur ávinningur fyrir sveitina.
Þegar hreppstjórinn er virtur og vinsæll, og
bænd-urnir þekkja tilgang félags síns og vita, hvernig því
gengur, og hvers það viðþarf sér til eflingar, þá er
komið í gott horf. Félagsandinn festir þá rætur
smátt og smátt, og þá er vonandi, að allir láti sér annt.
um það, sem sveitinni ríður mest á, að ala svo upp
munaðarleysingjana, sem eru fósturbörn þeirra allra
saman, að þeir á sínum tíma geti orðið dugandi menn
og eflt og aðstoðað félag sitt með því meira kappi
og atcrku, sem þeir eiga því betra uppfóstur að
þakka.
Það eru lög, að auka-útsvarið sé svo ríflegt, að
það ekki að eins hrökkvi til sveitarinnar útgjalda í
meðalárum eða betri, heldur svo, að sveitin fái
nokkr-ar afgangsleifar, sem eiga að bætast við hreppsjóð-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>