- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
227

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 227 —

er sundmaðurinn getur haft af íþrótt sinni. Forfeður
vorir voru fullnuma í þessari kunnáttu, og þykir
okkur enn 1 dag góð skemmtun, að lesa frásöguna um
Kjartan Ólafsson, er hann lék á sundi við Ólaf
kon-ung Tryggvason, eða þá um Gretti sterka, þegar hann
reið sér fit og lagði til lands úr Drangey á
vetrar-dag, og synti meira en viku sjávar. En það fór með
sundið okkar íslendinga eins og annað; þegar
deyfð-in kom í þjóðina, týndist sú mennt, og það er varla
ofhermt, að fyrir 14 eða 15 árum hafi ekki verið fleiri
en svo sem 6 menn á öllu landinu, sem væru
sjálf-bjarga, ef þeir lentu í polli, sem þeir náðu ekki niðri í.
Þá höfðu menn svo gjörsamlega gleymt öllu sundi, að
ofurhugar báru grjót á sig, og skriðu svo í
botnin-um yfir ár og síki, sem ekki voru of breið, en
eng-inn maður bar við að neyta léttleikans og fara
sam-kvæmt eðli sínu ofan-vatns, þó það væri þúsund
sinnum hægra. Herra Jón Porláksson frá Skriðu varð
fyrstur til að ráða nokkra bót á þessari
vankunn-áttu og sýna okkur aftur sundtökin, sem allir voru
búnir að gleyma. Það er alkunnugt, að hann
stofn-aði sundskóla bæði sunnanlands og norðan, og urðu
þeir margir frægustu sundmenn, er nutu hans
til-sagnar. Þetta var eitt af þeim fyrirtækjum, sem telja
má sæmd í fyrir Islendinga, og á höfundur þess, og
aðrir, sem studdu hans viðleitni, þökk og heiður
skil-inn hjá almenningi.

Svona fór þá aftur sundið að tíðkast á Islandir
sumir eru þegar orðnir góðir sundmenn, og þó ér enn
meira varið í, að löngunin er kviknuð, í þeim sem upp
eru að vaxa, til að nema þessa íþrótt, af því þeir sjá,
að hún er bæði nytsöm og gjörir þá menn að vaskari,
sem hana kunna. En margir eiga bágt með að fá
svo-góða tilsögn, sem þörf væri á. Það er hægra að læra

15*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0235.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free