- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
229

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 229 —

þurfa, og hefir hann gjört það allt saman eins og
hann hafði bezt vit á. Það er nú ósk okkar, aö þeir,
sem hafa mætur á sundlistinni, veiti þessum blöðum
eins góða viðtöku, eins og við seljum þau af hendi
með góðum hug.

YFIRLIT EPNISINS.

Um sundstæði................1

Um baðferöir....................2

Undirbúningur I hengi-

gjörSinni....................3

Um sundgjörSina og
hennar brükun ................4

Að steypa sér................5

Bringusund með höndum og

fótum........................6

Að fljóta............................7

Baksund ............................8

AS trotSa marvaðann............9

AtS stinga sér og synda Í kafi 10

HraSsund..............11

A8 synda Í fötunum......12

AS bjarga..............13

AS synda Í straumi......14

Varúðarreglur..........15

1.

Um sundstæði.

Viðast hvar um ísland er hægt að fá sundstæði,
og sumstaðar svo góð, að varla eru önnur betri i
heiminum; tel ég til þess laugarnar, þar sem svo er
háttað landslagi, að hlaðið verður fyrir þær og búin
til tjörn, eins og gjört var á Reykjum i Skagafirði,
þegar sundskólinn var þar um árið. Þessa kosti ætti
alls staðar að nota, þvi sundið lærist hálfu fyr, eins
og öllum er auðskilið, þegar vatnið er svo hlýtt, að
menn geta verið niðri í því kuldans vegna, eins lengi
og þeir vilja. Það er lika gott sundstæði, ef vatni
verður hleypt i hentuga lægð, og látið standa þar um
sumartima. Það hlýnar þá svo af hitanum í loftinu
og jarðarylnum að neðan, að það verður jafnhlýtt
veðrinu, og þarf þá ekki meira með, þegar bærilegt er
úti. Sama er að segja um sjóinn; hann verður
sæmi-lega hlýr á sumrin, og er því betra að læra sund í
honum, að sjóbaðið er hollara, og er það ráð, að allir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0237.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free