- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
230

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 230 —

noti hann, sem til hans ná. Verst eiga þeir með
sund-ið, sem hafa ekki nema ár eða fljót að læra það í.
Straumvatnið á Islandi er vant að vera kalt, því það
kemur mest undan jöklunum, og er hávaðinn af því
þiðnaður snjór, og fær ekki tíma til að hlýna. Þar á
ofan er það sjaldgæft, að fá svo hentugt síki eða hyl
undir árbakka, að þess konar sundstæði megi kalla
hættulaust.

Verði því við komið, á sundstæðinu að vera svo
háttað, að menn nái sumstaðar niðri í því, en aftur
á öðrum stöðum dýpra en svo, að þar sé stætt, og ekki
grynnra en 2 faðmar, þar sem það er dýpst. Garður
á að vera að þvi á einhvern veginn, eða þá
þver-hníptur bakki, og ekki mikið hærri en vatnið sjálft,
en svo aðdjúpt, að óhætt sé að steypa sér á kaf. Bezt
af öllu er samt að hafa sundfleka, búinn til úr
borð-um og trjám, og låta hann fljóta á vatninu. (Þar
stendur kennslumaður*) á, með þá sem hann er að
segja til í hvert skipti, lætur hann þá steypa sér út af
flekanum og leiðir þá í sundgjörðinni hringinn í
kring um hann, eða þá á þrjá vegu, ef flekinn er
landfastur einumegin). Sundflekinn er ómissandi,
þar sem margir piltar eiga að læra, og þarf ekki
heldur að kosta mikið, sé viðurinn til á annað borð,

*) Ég verö aS geta þess, a?5 þeir, sem ætla sjálfir aS læra
sund eftir þessum bæklingi, mega samt ekki vera einir. Þeir
verSa að hafa annan mann met5 sér, sem gangi þeim í
kennslu-manns stað og gjöri þat5 allt, sem honum ber að gjöra, eftir
þeim reglum, sem finnast í bókinni. En hafi fleiri tekið sig
saman, geta þeir skipzt til aS hjálpa hver öíSrum. Bezt af öllu
fer það samt, aS stofna skólana, enda þótt enginn sérlegur
sundmaöur sé til ats veita þeim forstööu; þvl vel má hann
kenna sundiö fyrir því, ef hann er aðgætinn, og sér um, aö
reglunum sé nákvæmlega hlýtt. ÞatS er líka gjört ráð fyrir
skóla 1 reglunum sjálfum, og ortSunum hagaö eftir því, en þó
svo, a?S hver einstakur maíiur geti tekiS úr þeim allt, sem hann
])arf handa sjálfum sér.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0238.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free