Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 231 —
því hann verður ekkert verri fyrir það, þó hann
fljóti á vatninu nokkra stund.
2.
Um baðferðir.
Það er gott að fara í bað, því bæði þvær það
hörundið, og lífgar og styrkir líkamann; en þar að
auki er það ómissandi undirbúningur fyrir þá, sem
ætla sér að læra sund.
Þeir, sem fara í bað, eiga því að reyna til að
venja sig við vatnið, eins vel og þeir geta, stinga
niður í höfðinu, og fara aftur og aftur allir í kaf. Bezt
er líka að busla sem mest, en vera aldrei
aðgerðar-laus, og låta þetta ganga, þangað til farið er að finna
til hrolls; þá er mál að hætta og klæða sig.
Viðvaningar verða að fara varlega og sæta gó vu
veðri; en eftir nokkurn vana þolir hver rr.aður,
hraustur og heilbrigður, að baða sig, þó kalt sé úti,
Danir vilja ekki synda, sé hiti lofts og vatns minni
en 12 mælistig; en reynslan hefir sýnt, að
Islend-ingar mega bjóða sér töluvert kaldara.
Það er talið hollast, að baða sig kvöld og morgna;
samt er ekkert að því, að fara í bað hvenær á degi
sem menn vilja, nema þegar nýborðað er. Eigi menn
að ganga til baðsins, þá er bezt að fara í hægðum
sínum, og staldra þó við á bakkanum fjórðung
stund-ar eða lengur, áður en út í er farið, til að vera
orð-inn öldungis afsveittur. Meðan á þessu stendur, á að
fara úr fötunum smátt og smátt, en sitja samt í
skyrtunni þangað til seinast.
Fyrst á að væta brjóstið og höfuðið, og fara svo
með öllu í kaf, ef vatnið er svo djúpt, að því verði
við komið. Sé það sundkennslumaður, sem hefir um-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>