Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 239 —
að þeir geta laglega synt 50 faðma, og þar að auki
nokkurn veginn flotið, snúið sér við til beggja handa,
og synt á bakinu í slakri gjörð, þá er óhætt að sleppa
þeim úr bandinu; en ekki er ráðlegt að gjöra það
fyr, sízt ef sundstæðið er djúpt.
Að því búnu synda piltarnir aðstoðarlaust; en
þó með umsjón kennslumannsins, þangað til þeir
geta hæglega synt 200 faðma. Þá þykir sundmanni
fullkennt; því það eru ekki allir, sem þola að leggja
á sig langt sund; en þessi vegalengd er samt
hættu-laus hverjum heilbrigðum manni. Þeir, sem hafa gott
þol, og halda áfram með sundið, komast líka allir
með tímanum mörgum sinnum lengri veg.
Séu margir piltar í sundskóla, endist
kennslu-maður ekki til að halda þeim öllum uppi í gjörðinni,
því það er töluverð þreyta; liann þarf líka að hafa
gát á mörgu, og taka stundum höndunum til. Því er
honum bezt, að låta þá, sem stærstir og sterkastir
eru, skiptast um að hjálpa sér.
’7.
Að fljóta.
Það var almenn trú í fornöld, að allir menn væru
þyngri en jafnmikið vatn og svaraði stærð þeirra,
og að allir menn yrðu að sökkva í vatninu, ef
ekk-ert væri til að halda þeim uppi. Aftur á vorum
dög-um hafa margir haldið, að allir menn væru léttari en
vatnið, hvernig sem stæði á loftslagi, lifernisháttum,
sköpulagi, og öðru fleira, sem verður að gera töluvert
um í þvi efni. En þótt nú reynslan sanni hina seinni
tilgátuna á vel flestum, hafa þó margar tilraunir sýnt,
að sumir menn geta ekki flotið, og eins hitt, að allir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>