- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
252

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 252 —

segir, og krækja i þá, sem fyrir eiga að verða. Það
er lika jafn-gott! En þó er nú ekki svo að skilja, að
þetta sé rödd hrópandans. Hann hefði tekið alla
kyn-slóðina, og sagt við þá: Þér eiturormar og nöðrukyn!
Það hefði verið ,,mátulegt orð". En
Sunnanpóstur-inn fer að slá úr í miðju kafi, og segir: „Þá eru
Tistrans- og Svoldar-rímur æði-miklu betri". Þarna
kom meinleysið fram! Ég hefi að sönnu ekki lesið
Svoldar-rímur og þekki þær ekki; en fyrst hann
tel-ur þær saman við rímurnar af Tistrani og Indiönu,
og hvorartveggja rimurnar eru eftir sama
mann-inn, þá gjöri ég ráð fyrir, hinar muni ekki taka þeim
stórmikið fram. Og af Tistrans-rímum er það
sann-ast að segja, að þær eru i mesta máta vesælar; og
sizt er í að skilja, til hvers nokkur maður vill vera að
mæla þeim bót, þvi siður hæla þeim. Einmitt af því
Sunnanpósturinn telur þær með betri rímum, hefi
ég tekizt i fang að lesa þær frá upphafi til enda —
þó það væri leiðindaverk — til að geta sýnt
almenn-ingi, hvað mikið honum sé ábótavant, þessum
kveð-skap, og hversu það sé fjarstætt, að hann geti heitið
s/cóMskapur; og býst ég þá við, flestir muni låta sér
skiljast, að hitt, sem er lakara eður ekki betra en
á borð við Tistransrimur, muni eiga heimangengt,
og sé ekki óskandi, að þvi verði fjölgað.

Fyrst er að minnast á efnið i fám orðum. Það
er einhver lygasaga, og höfundur segir, hún sé dönsk.
Ég hefi ekki viljað hafa fyrir að leita hana uppi, til
að grennslast eftir, hvað mikið eða litið hún hafi
af-lagazt i huga kveðandans; þvi hún er auðsjáanlega
svo einskisverð og heimskulega ljót og illa samin^
að hennar vegna stendur á litlu, hvernig með hana
er farið. Það er auðvitað, að einu gildir, hvort hún
væri sönn eður ekki, ef hún væri falleg á annað borð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0260.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free