Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 254 —
ið, samkvæmt mannlegu eðli, að hatrið í brjósti
Indi-önu snerist upp 1 ást, og hvernig þessar ástríður
átt-ust við í sálu hennar, þangað til hatrið varð fyrir borð
borið og ástin settist að völdum, til að hefja nýja
baráttu við skylduna. Hitt tekur samt út yfir,
hvernig sagt er frá sambúð og viðtali þeirra Tistrans,
þeg-ar svona var komið fyrir þeim. Þetta er svo ljótt og
viðbjóðslegt í rímunum, að varla getur hjá því fariðr
það hafi saurgazt og aflagazt í hjarta kveðandans.
Þeir, sem kynnu að efast um þetta, þyrftu varla
annað en glöggva sig á 5. og 9. rímunni; og vona ég
þá, þeir afsaki mig, þó ég kynoki mér við að hafa
það eftir, sem verst er, og ég einkum meina til. Ekki
hefir hóti betur tekizt að lýsa Rauðreki og því, sem
hann hafði við að stríða; og þó fyrirverður
maður-inn sig ekki að grobba af því í einum mansöngnum
(í 12. r.), að nú hafi landsfólkið fengið betra skyn á
því, sem fagurt sé og ljótt, eður gott og illt, — ,,nær
med kærum sannleiks sid Sagan kom í letur". (Þetta:
„med kærum sannleiks sid" sómir sér ekki illa á
þess-um stað, hvort sem það á heldur að vera hortittur,
eða það er lítilfjörlegt sýnishorn af vitsmunum
skáldsins). — Ég þykist nú hafa talað nóg um efnið
í rimunum. Frágangurinn á því er allur eins og á
þessu, sem hér er nefnt — því er svo jafn-fallega
log-ið — nema hvað þar koma, eins og við er að búast,
ýmsar fróðlegar bendingar áhrærandi landafræðina,
og hin cg önnur merkileg atvik úr hirðsiðum
konung-anna á miðöldinni, að ógleymdu dálitlu dýri á einum
stað, sem höfundinum hefir þóknazt að skapa. Þetta
dýr er ekki ósvipað rimunum sjálfum: Það er með
merarhálsi og hvalshöfði, og hræðilega afturmjótt,
með hala-korni, og allt saman þakið skeljum.
Búkn-um þykir svo fallega lýst, að höfundinum er vor-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>